peoplepill id: olafur-kalstad-thorvardsson
ÓKÞ
3 views today
3 views this week
Ólafur Kalstað Þorvarðsson

Ólafur Kalstað Þorvarðsson

The basics

Quick Facts

The details (from wikipedia)

Biography

Ólafur Kalstað Þorvarðsson (15. janúar 1911 – 10. desember 1942) var íslenskur knattspyrnumaður, fyrsti forstjóriSundhallarinnar í Reykjavík og formaður Knattspyrnufélagsins Fram.

Ævi og störf

Ólafur fæddist í Reykjavík og varð snemma virkur í íþróttastarfi. Hann lék knattspyrnu með Fram og var í úrvalsliði íslenskra knattspyrnumanna sem lék í Þýskalandi sumarið 1935. Auk þess að keppa undir merkjum Fram gegndi Ólafur formannsembættinu í sex ár, frá 1929-35.

Hann var ráðinn fyrsti forstjóri Sundhallarinnar árið 1936 og undirbjó rekstur hennar með því að kynna sér starfrækslu sundhalla í Danmörku og Þýskalandi.

Ólafur missti ungur heilsuna og varð að leggja skóna á hilluna árið 1938. Hann starfaði þó áfram á vettvangi félagsins og sá meðal annars um þjálfun meistaraflokks sumrin 1941 og 1942.

Kjartan, bróðir Ólafs, var einnig virkur í félagsmálum Framara. Hann ritaði mikið um íþróttir í Morgunblaðið og má teljast brautryðjandi í íslenskri íþróttafréttamennsku.

Faðir þeirra Kjartans og Ólafs var Þorvarður Þorvarðsson, fyrsti formaður Leikfélags Reykjavíkur.


Formaður Knattspyrnufélagsins Fram
Formaður Knattspyrnufélagsins Fram
(1929 – 1935)
(1929 – 1935)


The contents of this page are sourced from Wikipedia article. The contents are available under the CC BY-SA 4.0 license.
Lists
Ólafur Kalstað Þorvarðsson is in following lists
comments so far.
Comments
From our partners
Sponsored
Ólafur Kalstað Þorvarðsson
arrow-left arrow-right instagram whatsapp myspace quora soundcloud spotify tumblr vk website youtube pandora tunein iheart itunes