Jón Þórarinsson
Quick Facts
Biography
Jón Þórarinsson (13. september 1917 – 12. febrúar 2012) var íslenskt tónskáld og tónlistarkennari. Jón stundaði tónlistarnám við Tónlistarskólann í Reykjavík og hjá Paul Hindemith við Yale háskólann og sótti eitt sumarnámskeið við Julliardskólann.Jón var yfirkennari 1947 til 1968 við Tónlistarskólann í Reykjavík, yfirmaður lista- og skemmtideildar Sjónvarpsins frá 1968 til 1979, auk fjölmargra annara vekefna á sviði tónlistar. Jón hefur aðallega samið kammer- og söngverk, en meðal þekktra sönglaga eru Fuglinn í fjörunni og Íslenskt vögguljóð á Hörpu. Jón samdi einnig hljómsveitar-/kórverkið Völuspá.
Jón vann í í mörg ár við að safna heimildum og skrifa um tónlistarsögu Íslands en Njáll Sigurðsson tók við þessari vinnu þegar heilsu hans fór hrakandi. Bókin Íslensk tónlistarsaga 1000-1800 var gefin út af Tónlistarsafni Íslands eftir andlát hans í 50 eintökum og rafrænt.