Sigurjón Friðjónsson
Quick Facts
Biography
Sigurjón Friðjónsson (22. september 1867 – 26. maí 1950) var alþingismaður og skáld, fæddur á Sílalæk í Aðaldal í Suður-Þingeyjarsýslu. Hann er talinn í hópi nýrómantískra skálda symbólismans.
Æviágrip
Sigurjón lauk prófi í búfræði á Eiðum 1887 og sat á Alþingi 1918–1922. Hann tók meðal annars sæti Hannesar Hafsteins í veikindum hans. Kona Sigurjóns var Kristín Jónsdóttir (1867-1928) og af börnum þeirra fetaði eitt í fótspor hans, Bragi Sigurjónsson (1910-1995), og var bæði alþingismaður og skáld. Auk þess var bróðir hanns Guðmundur Friðjónsson mikilvirkt skáld.
Sigurjón var lengst af bóndi á Litlu-Laugum í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu og bjó þar til dauðadags. Honum var mjög annt um menntamál og meðal annars gaf hann Framhaldsskólanum á Laugum land undir skólann. Fylgdu þá með heitavatnsréttindi meðal annars svo að þetta var mjög rausnarleg gjöf. Seinna meir varð einn sona hans, Dagur Sigurjónsson, skólastjóri við þann skóla.
Sigurjón skrifaði fjölda ljóða, smásagna og blaðagreina, auk þess að þýða ljóð.
Helstu útgefin ritverk
- Ljóðmæli (þýdd ljóð) (1928)
- Skriftamál einsetumannsins (prósaljóð) (1929, endurútgefinn 1999)
- Þar sem grasið grær (smásagnasafn) (1937)
- Heyrði eg í hamrinum I - III (ljóð) (1939-1944)
- Barnið á götunni (ljóð) (1943)
Heimildir
- Stefán Einarsson. 1961. Íslensk Bókmenntasaga 874-1960. (Reykjavík: Snæbjörn Jónsson & co.).
- Alþingi - Æviágrip: Sigurjón Friðjónsson