Rósa Björk Brynjólfsdóttir
Quick Facts
Biography
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (f. 9. febrúar 1975) er íslensk fjölmiðlakona og þingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs. Hún hefur starfað við fjölmiðla frá árinu 1999 og sem fjölmiðlafulltrúi fjármálaráðuneytisins á árunum 2010 til 2015. Rósa skipaði 2. sæti á lista Vinstri grænna í Suðvesturkjördæmi í Alþingiskosningum 2013 og var varaþingmaður á því kjörtímabili. Haustið 2016 varð hún oddviti lista flokksins í Suðvesturkjördæmi og var kosin á þing í Alþingiskosningunum 2016.
Rósa er með BA-gráðu í frönsku og fjölmiðlafræði frá Háskóla Íslands og Université de Stendhal í Frakklandi.
Rósa æfði knattspyrnu með Breiðabliki og var í U17 landsliði kvenna 1990-1991.
Hún á þrjú börn og er í sambúð með Kristjáni Guy Burgess, sem var aðstoðarmaður Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra árin 2009-2013.