peoplepill id: rondey-robinson-1
RR
Iceland
1 views today
1 views this week
Rondey Robinson
Icelandic basketball player

Rondey Robinson

The basics

Quick Facts

Intro
Icelandic basketball player
Places
Work field
Birth
Age
58 years
The details (from wikipedia)

Biography

Rondey Robinson (f. 14. maí 1967) er bandarískur fyrrum körfuknattleiksmaður. Hann lék sex tímabil í Úrvalsdeild karla með Njarðvík, þar sem hann varð þrívegis Íslandsmeistari.

Háskóli

Rondey lék körfuknattleik með liði Wright State sem þjálfað var af Ralph Underhill. Hann missti af lokaári sínu í skólanum vegna hnémeiðsla sem þörfnuðust skurðaðgerðar.

Ísland

Rondey samdi við Njarðvík sumarið 1990 um að verða spilandi þjálfari fyrir liðið. Fljótlega eftir að hann kom til Njarðvíkur var þó ákveðið að Friðrik Ingi Rúnarsson tæki við sem þjálfari og að Rondey einbeitti sér að spilun. Eftir erfiða byrjun þá féll Rondey betur inn í liðið eftir því sem á leið tímabilið. Undir lokin fögnuðu Njarðvíkingar Íslandsmeistaratitlinum eftir sigur á Keflavík í oddaleik. Í oddaleiknum skoraði Rondey 17 stig og tók 23 fráköst.

Í úrslitakeppninni 1994 tryggði Rondey Njarðvíkinum Íslandsmeistaratitilinn með því að skora úr einu af tveimur vítum þegar 1,4 sekúndur voru eftir af oddaleik þeirra á móti Grindavík en lokatölur leiksins urðu 68-67. Eftir tímablið var hann útnefndur besti erlendi leikmaður Úrvalsdeildar karla.

Rondey lagði skóna á hilluna eftir tap Njarðvíkur á móti Keflavík í undanúrslitum úrslitakeppninnar 1996.

Fjölskylda

Rondey ólst upp í Chicago með fimm bræðrum og tveimur systrum.

Titlar og viðurkenningar

  • 3x Íslandsmeistari (1991, 1994, 1995)
  • Bikarkeppni karla (1992)
  • Meistarakeppni karla (1995)
  • 2x Besti erlendi leikmaður Úrvalsdeildar karla (1992, 1994)
  • Frákastahæsti leikmaður Úrvalsdeildar karla (1991)

Tilvísanir

  1. „Rondey Robinson í Visa sport“. Youtube.com. 1996. Sótt 2. september 2017.
  2. Kárason, Ægir Már April 11, 1995, „Ég á orðið fleiri vini hér en í Bandaríkjunum". Dagblaðið Vísir. (Icelandic) Skoðað 2. september 2017.
  3. Ólafsson, Frímann April 11, 1995, „Rondey líklega áfram". Morgunblaðið. (Icelandic) Skoðað 2. september 2017.
  4. „Eðlislægt að leggja mig alltaf eins vel fram og ég get". Morgunblaðið. (Icelandic) April 12, 1995. Skoðað 2. september 2017.
  5. Archdeacon, Tom September 9, 2011, „Ex-WSU basketball coach Underhill passes away". Springfield News-Sun. (Icelandic) Skoðað 2. september 2017.
  6. „Þarf að sanna mig". Morgunblaðið. (Icelandic) November 23, 1993.: B2. Skoðað 19. september 2017.
  7. „„Litli bróðir" var of stórfyrir Keflvíkinga". Morgunblaðið. April 12, 1991. Skoðað 25. september 2017.
  8. „Taugar Njarðvíkinga sterkari". Morgunblaðið. April 18, 1994.: 6,7. Skoðað 19. september 2017.
  9. „Áttundi titill Njarðvíkinga". Dagblaðið Vísir. April 18, 1994.: 22, 23. Skoðað 19. september 2017.
  10. „Guðmundur sá besti". Dagblaðið Vísir. April 23, 1994.: 38. Skoðað 19. september 2017.
  11. „„Ég á eftir að sakna fólksins"". Dagblaðið Vísir. March 26, 1996. Skoðað 19. september 2017.
  12. „Rondey kvaddur!". Víkurfréttir. April 2, 1996. Skoðað 19. september 2017.

Tenglar

Rondey Robinson  Þetta æviágriper stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
The contents of this page are sourced from Wikipedia article. The contents are available under the CC BY-SA 4.0 license.
Lists
Rondey Robinson is in following lists
comments so far.
Comments
From our partners
Sponsored
Credits
References and sources
Rondey Robinson
arrow-left arrow-right instagram whatsapp myspace quora soundcloud spotify tumblr vk website youtube pandora tunein iheart itunes