Ólafur Halldórsson
Quick Facts
Biography
Ólafur Halldórsson (21. október 1913 – 15. mars 1992) var skrifstofumaður íReykjavík, knattspyrnumaður og formaður Knattspyrnufélagsins Fram.
Ævi og störf
Ólafur (Guðmundur) Halldórsson var yngstur tólf systkina, en þar af komust níu til fullorðinsára. Hann ólst upp á Njálsgötunni, en þaðan kom um árabil harðasti kjarninn í Knattspyrnufélaginu Fram. Ólafur starfaði mestalla tíð sem skrifstofumaður. Lengi á skrifstofu borgarstjóra en síðar hjá Gjaldheimtunni í Reykjavík.
Hann var um árabil leikmaður með meistaraflokki Fram í knattspyrnu og varð Íslandsmeistari árið 1939. Formaður félagsins varð hann 1942-43, en gegndi einnig ýmsum öðrum trúnaðarstörfum. Til að mynda var hann um skeið fulltrúi félagsins í stjórn og varð Knattspyrnuráðs Reykjavíkur.
Ólafur var bróðir Sigurðar og Guðmundar Halldórssona, sem báðir voru einnig formenn í Fram. Lúðvík Þorgeirsson, mágur þeirra bræðra, var sömuleiðis mikill forystumaður í félaginu og formaður þess um tíma. Að auki var Ólafur kvæntur systur enn eins formanns Fram, Gunnars Nielsen.
Formaður Knattspyrnufélagsins Fram | |
Formaður Knattspyrnufélagsins Fram | |
(1942 – 1943) | |
(1942 – 1943) |