peoplepill id: jon-tofason
JT
1 views today
1 views this week
The basics

Quick Facts

Gender
Male
The details (from wikipedia)

Biography

Jón Tófason eða Jón Henriksson var biskup á Hólum 1411 – 1423, eða í 12 ár.

Lítið er vitað um uppruna Jóns Tófasonar, t.d. ber heimildum ekki saman um föðurnafn hans og hvort hann var danskur eða sænskur. Hann var skipaður Hólabiskup 1411 af Jóhannesi 23. páfa, sem er ekki viðurkenndur lögmætur páfi. Árni Ólafsson Skálholtsbiskup gegndi lengstum biskupsembætti á Hólum í umboði Jóns biskups, sem dvaldist um tíma hjá Eiríki af PommernDanakonungi. Jón Tófason kom fyrst til Íslands 1419, kom hann með Íslandsfari frá Björgvin með Hannesi Pálssyni hirðstjóra og mörgum öðrum dönskum mönnum. Meðal þeirra voru danskir og norskir prestar sem hann gaf forræði á kirkjustöðum. Jón er talinn hafa stutt vald konungs gegn Englendingum, sem þá voru að seilast til áhrifa hér. Hinum erlendu biskupum (páfabiskupum), sem oft voru langdvölum erlendis, reyndist mörgum erfitt að fá innlenda presta og leikmenn til að lúta boðum sem þeir töldu sér í óhag, sem leiddi til óstjórnar í kristnihaldi og fjármálum. Jón Tófason dó 1423.

Árið 1425 tilnefndi páfi eftirmann Jóns Tófasonar. Sá maður hét Trud og var afförumunkareglu. Um hann er nánast ekkert vitað. Hann kom ekki til Íslands og hefur e.t.v. andast skömmu eftir tilnefninguna. Er hann því ekki talinn meðal Hólabiskupa.

Heimildir

  • Sigurður Líndal (ritstj.): Saga Íslands V.



Hólabiskup
Hólabiskup
(1411 – 1423)
(1411 – 1423)


The contents of this page are sourced from Wikipedia article. The contents are available under the CC BY-SA 4.0 license.
Lists
Jón Tófason is in following lists
comments so far.
Comments
From our partners
Sponsored
Jón Tófason
arrow-left arrow-right instagram whatsapp myspace quora soundcloud spotify tumblr vk website youtube pandora tunein iheart itunes