peoplepill id: jon-sigurdsson-1
JS
1 views today
1 views this week
Jón Sigurðsson

Jón Sigurðsson

The basics

Quick Facts

A.K.A.
Jón Sigurdsson
Gender
Male
Death
The details (from wikipedia)

Biography

Þessi grein fjallar um biskup. Til að sjá aðrar greinar um fólk sem heitir sama nafni má skoða aðgreiningarsíðuna.

Jón Sigurðsson (d. 1348) var biskup í Skálholti frá 1343. Hann var íslenskur og hafði verið munkur en ekkert er vitað um ætt hans og uppruna.

Jón sigldi til Noregs 1341, var vígður af Páli erkibiskupi 1343 og kom heim um haustið með skipi til Reyðarfjarðar. Á leiðinni í Skálholt kom hann við í Kirkjubæjarklaustri og vildi svo til að þá dó Agata abbadís. Jón lét brennanunnu eina í klaustrinu sem hafði „gefist púkanum“ en það er fyrsta galdrabrenna á Íslandi sem getið er um í heimildum. Í Þykkvabæ handtók hann þrjá munka og setti í járn; þeir höfðu barið Þorlák ábóta og hrakið hann burt, orðið berir að saurlífi og jafnvel barneignum. Einn þeirra var Eysteinn Ásgrímsson, höfundur Lilju.

Jón biskup varð brátt mjög óvinsæll, hvort sem það var af þessari tiltekt í klaustrunum eða einhverju öðru. Hann þótti mjög harður við landsmenn og hið sama var að segja um Orm Ásláksson Hólabiskup, sem var samtímis honum. Þeir fóru báðir út á sama skipi 1347 og var þá biskupslaust í landinu. Jón kom aftur 1348 en veiktist um haustið og dó skömmu fyrir jól "og varð fáum harmdauður", segir í Árbókum Espólíns.


Skálholtsbiskup
Skálholtsbiskup
(1343 – 1348)
(1343 – 1348)


The contents of this page are sourced from Wikipedia article. The contents are available under the CC BY-SA 4.0 license.
Lists
Jón Sigurðsson is in following lists
comments so far.
Comments
From our partners
Sponsored
Jón Sigurðsson
arrow-left arrow-right instagram whatsapp myspace quora soundcloud spotify tumblr vk website youtube pandora tunein iheart itunes