peoplepill id: johannes-nordal
JN
Iceland
5 views today
6 views this week
Jóhannes Nordal
��slenskur félags- og hagfræðingur og fyrrverandi bankastjóri Seðlabanka Íslands

Jóhannes Nordal

The basics

Quick Facts

Intro
��slenskur félags- og hagfræðingur og fyrrverandi bankastjóri Seðlabanka Íslands
Places
Gender
Male
Birth
Age
101 years
Family
The details (from wikipedia)

Biography

Jóhannes Nordal (f. 1924) er íslenskur félags- og hagfræðingur og fyrrverandi bankastjóri Seðlabanka Íslands.

Foreldrar Jóhannesar voru hjónin Sigurður Nordal og Ólöf Nordal. Jóhannes lauk doktorsnámi við London School of Economics árið 1953, þá lauk hann við ritgerð sína Changes in Icelandic social structure since the end of the 18th century with particular reference to trends in social mobility. Hann var seðlabankastjóri frá stofnun Seðlabanka Íslands árið 1961 til ársins 1993 þar af formaður bankastjórnar frá 1965. Þegar hann var heiðraður af Seðlabankanum í tilefni af hálfrar aldar afmæli Fjármálatíðinda var haft á orði að hann hefði verið „ímynd Seðlabankans og mikill áhrifavaldur um íslensk efnahagsmál.” Jóhannes var kjörinn stjórnarformaður Landsvirkjunar við stofnun hennar 1. júlí 1965 og gegndi hann því starfi til 1995. Honum var veitt heiðursdoktorsnafnbót við félagsvísindadeild árið 1988 og við Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands árið 1989. Hann var ritstjóri Fjármálatíðinda um árabil.

Jóhannes ritaði innganginn að lærdómsritinu Iðnríki okkar daga eftir kanadíska hagfræðinginn John Kenneth Galbraith sem var þýðing á Reith fyrirlestri Galbraiths árið 1966, Hann ritaði einnig inngang að bók Hannesar Finnssonar: Mannfækkun af hallærum, Rvík 1970. Árið 1994 kom út bókin Málsefni, sem var safn ritgerða, í tilefni af sjötugsafmæli Jóhannesar.

Eftir langvarandi stjórnarkreppu árið 1979 kom til tals að Jóhannes yrði skipaður forsætisráðherra Íslands í utanþingsstjórn Kristjáns Eldjárn forseta. Jóhannes féllst á að leiða stjórnina og Kristján undirbjó tilkynningu um stofnun hennar en að endingu varð þó ekkert úr stofnun utanþingsstjórnarinnar því Sjálfstæðismenn féllust á síðustu stundu á að styðja minnihlutastjórn Alþýðuflokksins undir forsæti Benedikts Gröndals.

Maki Jóhannesar er Dóra Guðjónsdóttir Nordal og börn þeirra: Bera Nordal, Sigurður Nordal, Guðrún Nordal, Salvör Nordal, Ólöf Nordal, og Marta Nordal.

Tilvitnanir

Tenglar

  Þetta æviágriper stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
The contents of this page are sourced from Wikipedia article. The contents are available under the CC BY-SA 4.0 license.
Lists
Jóhannes Nordal is in following lists
comments so far.
Comments
From our partners
Sponsored
Credits
References and sources
Jóhannes Nordal
arrow-left arrow-right instagram whatsapp myspace quora soundcloud spotify tumblr vk website youtube pandora tunein iheart itunes