Gunnar Halldórsson
Quick Facts
Biography
Gunnar Halldórsson (24. október 1894 – 2. júní 1962) var skrifstofustjóriog formaður Knattspyrnufélagsins Fram.
Ævi og störf
Gunnar fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í stórum systkinahópi, sonur Halldórs Jónssonar bæjarfulltrúa. Meðal systkina Gunnars var Pétur Halldórsson sem var borgarstjóri Reykjavíkur frá 1935-40. Sjálfur starfaði Gunnar lengst af hjá Reykjavíkurbæ og sá um bókhald fyrir nýbyggingar bæjarins. Kona hans var Kristín Björnsdóttir.
Vorið 1908 var Gunnar í hópi stofnfélaga Knattspyrnufélagsins Fram. Hann var framherji í fyrsta kappliði félagsins gegn KR í vígsluleik Melavallar 1911 og tók þátt í fyrsta Íslandsmótinu 1912. Gunnar lék síðast með Fram sumarið 1920.
Árið 1910 lá við að Fram gliðnaði í sundur vegna deilna félagsmanna, meðal annars um afnot af bolta félagsins. Til að miðla málum tók Gunnar Halldórsson tímabundið við formennsku í félaginu og gegndi henni í nokkrar vikur.
Gunnar lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík og hóf þá störf hjá fyrirtækinu Th. Thorsteinsson sem starfrækti útgerð og rak verslunina Liverpool. Hann hóf síðar sjálfstæðan verslunarrekstur og var um tíma meðeigandi í versluninni Brynju, en seldi hlut sinn þegar hann réðst til starfa hjá Reykjavíkurbæ.
Árið 1932 hóf Gunnar rekstur billjardstofu að Vesturgötu 5, þar sem meðal annars var að finna spilakassa eða happdrættisvél. Lögreglan skar upp herör gegn billjardstofum árið 1936 fyrir brot á reglum um aldur gesta. Gunnar var í hópi þeirra eigenda sem kærðir voru og munu spilakassarnir hafa verið teknir úr notkun að því tilefni.