Jón Hjartarson

Icelandic actor
The basics

Quick Facts

IntroIcelandic actor
PlacesIceland
isActor
Work fieldFilm, TV, Stage & Radio
Gender
Male
Birth20 January 1942
Age83 years
Star signAquarius
The details

Biography

Jón Hjartarson (f. 20. janúar 1942) er íslenskur leikari.

Ferill í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum

Jón Jóhann Hjartarson er fæddur 20. janúar 1942 á Hellissandi. Hann útskrifaðist sem kennari frá Kennaraskóla Íslands 1965 og lauk leikaraprófi frá Leiklistarskóla Leikfélags Reykjavíkur 1968. Jón var jafnframt við framhaldsnám í Berlín 1984. Hann hefur um margra ára skeið starfað sem fastráðinn leikari hjá Leikfélagi Reykjavíkur og leikið í kringum 80 hlutverk. Jón hefur einnig leikið með ýmsum leikhópum, s.s. Grímu, Litla leikfélaginu, Litla leikhúsinu, Öðru fólki o.fl. Hann hefur ennfremur leikið í kvikmyndum sem og fjölmörgum sjónvarps- og útvarpsverkum.

Jón hefur samið fjölda leikrita bæði fyrir börn og fullorðna, auk barna- og unglingabóka. Fyrsta leikrit hans, Afmælisboðið, er frá 1969. Hann samdi leikgerð upp úr skáldsögu Kristínar Marju Baldursdóttur, Mávahlátri, sem sett var upp hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1998. Hann hefur bæði leikstýrt verkum sínum og annarra hjá atvinnuleikhúsum og áhugaleikhópum. Hann hefur einnig samið ýmis konar dagskrár fyrir félagasamtök og stofnanir sem og aragrúa skemmtiþátta, rabbþátta, söngtexta og pistla.

Jón er kvæntur Ragnheiði Tryggvadóttur framkvæmdastjóra. Þau eiga tvö börn, Hjört Jóhann og Sigríði Lárettu og búa í Reykjavík. Jón á einnig dæturnar Helgu Brögu og Ingveldi Ýr.

María Bjarkadóttir, 2003.

ÁrKvikmynd/ÞátturHlutverkAthugasemdir og verðlaun
1989Áramótaskaupið 1989
1992IngalóKallinn
2000Englar alheimsinsLögregluþjónn
2001No Such ThingBorgarstjóri

Tenglar

  Þetta æviágrip sem tengist leikurum og Íslandi er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
The contents of this page are sourced from Wikipedia article on 05 Jul 2020. The contents are available under the CC BY-SA 4.0 license.