Biography
Also Viewed
Quick Facts
Gender |
| |
Birth | 18 July 1970 | |
Age | 54 years | |
Star sign | Cancer |
Biography
Ármann Jakobsson (f. 18. júlí 1970) er prófessor í íslensku og rithöfundur. Hann útskrifaðist frá Menntaskólanum við Sund árið 1990, lauk svo BA-prófi frá Háskóla Íslands 1993 og MA-prófi 1996. Lauk svo doktorsprófi frá HÍ 2003. Frá því í júlí 2011 hefur hann gegnt stöðu prófessors við íslensku-og menningardeild Háskóla Íslands. Systir hans Katrín Jakobsdóttir var menntamálaráðherra 2009-2013.
Á menntaskólaárum sínum komst hann ásamt tvíburabróður sínum Sverri þrisvar í úrslit í Gettu betur og sigraði í þeirri keppni 1990. Árið 1989 var hann í ræðuliði skólans sem sigraði í Morfís-ræðukeppninni. Árið 2001 var Ármann dómari í Gettu betur.
Ármann hefur sent frá sér þrjár skáldsögur, Vonarstræti árið 2008 og Glæsi árið 2011, síðasti galdrameistarinn árið 2014, en í hinni síðarnefndu er efniviðurinn sóttur í Íslendingasöguna Eyrbyggju.
Ármann hefur sérhæft sig í miðaldabókmenntum og ásamt fræðiskrifum og fræðistörfum var hann kennari við Menntaskólann í Reykjavík 2002-2008. Um vorið 2011 kom út í ritröðinni Íslenzk fornrit hjá Hinu íslenska fornritafélagi konungasagnaritið Morkinskinna í tveimur bindum en Ármann sá um útgáfuna ásamt Þórði Inga Guðjónssyni.